Fréttir

Við bjóðum ykkur velkomin í áskrift!

„Fyrir mikilvægasta fólkið“ eru einkunnarorð okkar. Við leggjum ríka áherslu á að börn fái næringarríkar, fjölbreyttar og bragðgóðar máltíðir sem styðja við vellíðan þeirra og námsgetu yfir daginn.

Hagnýtar upplýsingar fyrir skólaárið 2026-2027

  • Skráning fyrir haustið 2026 er hafin á www.skolamatur.is.
  • Skólamáltíðir í hádeginu eru gjaldfrjálsar en nauðsynlegt er að skrá nemendur í áskrift og mikilvægt er að gefa upp réttar upplýsingar við skráningu.
  • Skráning í ávaxtaáskrift fer einnig fram á www.skolamatur.is. Þau sveitarfélög sem bjóða upp á ávaxtaáskrift kynna slíkt í skólabyrjun.
  • Mataráskriftir endurnýjast mánaðarlega út skólaárið nema þeim sé sagt upp sérstaklega.
  • Nemendur fá sérstakt skólanúmer sem þeir nota þegar afhending máltíða fer fram í mötuneyti skólans.
  • Ef mataráskrift er ekki nýtt að ákveðnu marki mánaðarlega lokast fyrir hana og sækja þarf um áskrift að nýju.
  • Skólamatur býður upp á sérfæði fyrir nemendur sem vegna trúarbragða, lífsstíls, ofnæmis, óþols eða annarra læknisfræðilegra ástæðna geta ekki neytt matar af almennum matseðli. Sé óskað eftir sérfæði vegna ofnæmis, óþols eða greininga skal skila inn læknisvottorði í tölvupósti á serfaedi@skolamatur.is
  • Afgreiðsla hádegismáltíða hefst frá og með fyrsta kennsludegi.


Fyrir skólaárið 2026–2027 höfum við unnið að ýmsum umbótum á matarþjónustunni. Meðal annars höfum við aukið úrvalið í meðlætisbarnum enn frekar með ferskum og fjölbreyttum valkostum fyrir nemendur og starfsfólk. Með þessum breytingum geta þau sem vilja útbúið sér staðgóða og næringarríka máltíð úr meðlætisbarnum í stað aðalréttar eða bætt við sem hollu meðlæti eins og áður.

Markmið þessara breytinga er að mæta betur ólíkum smekk og þörfum nemenda, auka valfrelsi og draga jafnframt úr matarsóun. 

Vegan máltíð verður áfram í boði fyrir þau sem kjósa vegan mataræði en nú þurfa foreldrar/forráðamenn vegan nemenda að óska eftir sérfæði við skráningu í mataráskrift. Skráning í vegan mataræði fer fram með sama hætti og skráning í annað sérfæði.

Á heimasíðu Skólamatar, www.skolamatur.is, má finna matseðla, innihaldslýsingar og næringarupplýsingar um allar máltíðir. Þar er einnig hægt að skrá sig á póstlista og fá matseðla senda beint í tölvupósti.

Við deilum reglulega upplýsingum, fréttum og fróðleik á samfélagsmiðlum okkar:

Aftur í fréttalista

Sími: 420 2500
8:00 - 16:00