Þakkarorð til viðskiptavina Skólamatar
Kæru viðskiptavinir,
Nú þegar starfsárið er að ljúka viljum við hjá Skólamat þakka fyrir samstarfið í vetur. Það er okkur heiður að fá að taka þátt í því mikilvæga verkefni að bjóða nemendum upp á næringarríkar, fjölbreyttar og vandaðar skólamáltíðir – í nánu samstarfi við ykkur.
Veturinn sem er að líða hefur einkennst af breytingum og nýjum áskorunum, ekki síst í kjölfar tilkomu gjaldfrjálsra skólamáltíða í grunnskólum. Við höfum tekist á við þessar breytingar með lausnamiðuðu hugarfari, fagmennsku og metnaði. Nemendum sem nýta sér þjónustu okkar hefur fjölgað og nýir skólar hafa bæst í hópinn. Þessi þróun hefur kallað á breytt skipulag – sem hefur skilað jákvæðum árangri.
Við viljum sérstaklega þakka fyrir þær ábendingar og athugasemdir sem okkur hefur borist. Þær hafa allar nýst vel til að viðhalda gæðum, bæta þjónustuna og þróa skólamatinn í takt við þarfir og væntingar nemenda og skólasamfélaga.
Á árinu höfum við lagt enn meiri áherslu á gæðamál og þá sérstaklega faglega þjálfun starfsfólks. Matreiðslumenntaður ráðgjafi fer í alla skóla og veitir starfsfólki stuðning og leiðsögn. Þá höfum við fjárfest í búnaði og innviðum til að bæta framleiðslu rétta, auka fjölbreytni og efla gæði. Næsta vetur stefnum við svo á að auka úrval í meðlætisbarnum í grunnskólunum en þróunarstarf hefur staðið yfir undanfarna mánuði í þeim efnum.
Stöðugt er unnið að því að draga úr matarsóun og nýta upplýsingar og gögn betur til að bæta ákvarðanatöku og rekstur.
Skólamatur hefur ávallt lagt áherslu á að fylgjast með því sem best gerist erlendis. Í vetur kynntum við okkur framleiðslueldhús í Þýskalandi þar sem við fengum margar góðar hugmyndir sem munu nýtast okkur vel. Þannig reynum við að tryggja stöðu okkar sem leiðandi fyrirtæki á sviði skólamáltíða og sjálfbærra lausna.
Framundan bíða okkar svo spennandi tækifæri. Við ætlum að halda áfram að þróa þjónustuna, innihald rétta, efla vöruúrvalið og styrkja samvinnu við okkar mikilvægasta fólk. Við munum áfram vinna eftir gildum okkar sem eru: jákvæðni, virðing og fjölskylda – gildi sem mynda kjarnann í því sem við viljum standa fyrir.
Við í Skólamat viljum þakka öllum viðskiptavinum, nemendum, forráðafólki og starfsfólki skólanna fyrir samstarfið á skólaárinu sem er að líða og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs og uppbyggjandi samskipta á nýju skólaári.
Sumarkveðjur,
Jón Axelsson
Framkvæmdastjóri Skólamatar
