Spornum við matarsóun
Hjá Skólamat er lögð rík áhersla á umhverfisvernd og að lágmarka matarsóun.
Við flokkum allt rusl sem fellur til og skilum aðgreindu til sorpmóttöku. Öllum lífrænum úrgangi er fargað á viðeigandi hátt. Í innkaupum leggjum við áherslu á að umbúðir séu úr endurvinnanlegum efnum og einnota vörur eru keyptar í lágmarki.
Starfsfólkið okkar fær fræðslu um meðhöndlun matvæla og rétta skömmtun með tilliti til matarsóunar. Fræðslan felur meðal annars í sér leiðbeiningar um hvernig skera eigi ávexti og grænmeti, framleiða matinn og hvernig best er að bera hann fram til að lágmarka sóun.
Dagleg nýting á öllu hráefni, magn þess sem er borðað og magn þess sem fellur til sem lífrænn úrgangur er skráð í sérstakt kerfi. Allur lífrænn úrgangur er vigtaður og skráður í kerfið.
Gögn úr kerfinu nýtast til að meta hversu mikið magn skuli framleiða, við þróun matseðla og til að lágmarka sóun.
Í flestum þeim skólum sem Skólamatur þjónustar skammta nemendur sér sjálfir á disk og meta þannig sjálfir magn matarins. Eftir að þessi aðferð var tekin upp hefur magn matarleifa sem fer í lífrænan úrgang minnkað verulega.
Með verklagi sem felur í sér sjálfskömmtun í skólum, skráningu á daglegri nýtingu og magni og fræðslu um skömmtun og framleiðslu með tilliti til matarsóunar hefur sóun minnkað umtalsvert. Við höldum nú áfram á þeirri vegferð að draga enn úr sóun og minnka allan úrgang.
Þess má einnig geta að öllum nýtilegum mat sem fellur til við framleiðsluna er komið í hendur Fjölskylduhjálpar Íslands sem kemur honum áfram til fjölskyldna í neyð.


