Fréttir

Metnaður í hverri máltíð

Fyrir mikilvægasta fólkið eru einkunnarorð okkar hjá Skólamat. Við framleiðum hollar og næringarríkar máltíðir sem samræmast ráðleggingum Embættis landlæknis um næringu barna á leik- og grunnskólaaldri. Hjá Skólamat er lagður metnaður í að tryggja hámarksgæði og ferskleika í hverri einustu máltíð. 

Eldað á staðnum
Í höfuðstöðvum okkar í Reykjanesbæ starfrækjum við miðlægt eldhús sem samanstendur af aðaleldhúsi, framleiðslueldhúsi og sérfæðiseldhúsi. Í eldhúsunum er maturinn undirbúinn af mikilli kostgæfni og lögð er áhersla á hámarksgæði og ferskleika hráefna. Til að tryggja að maturinn sé sem ferskastur þegar hann er borinn fram fer lokaeldun fram í skólunum sjálfum.
 
Stöðug þróun og nýsköpun
Matreiðslumenn okkar vinna hörðum höndum að því allt skólaárið að þróa nýja og spennandi rétti og við hlökkum til að kynna enn fleiri nýjungar í framtíðinni. Allir réttir fara í gegnum prufuferli áður en þeir rata á matseðilinn.
 
Við erum stolt af okkar eigin framleiðslu og því að fá að bjóða mikilvægasta fólkinu, börnunum okkar, upp á hollar og ljúffengar máltíðir alla daga en með eigin framleiðslu getum við stöðugt þróað réttina áfram eftir þörfum okkar viðskiptavina.

Aftur í fréttalista

Sími: 420 2500
8:00 - 16:00