Fjölbreyttari meðlætisbar
Skólamatur er í stöðugri þróun og við leitum sífellt leiða til að gera matartímann enn ánægjulegri og fjölbreyttari og því höfum við aukið úrvalið í meðlætisbarnum okkar til muna.
Trausti grunnurinn sem hefur reynst vel verður áfram til staðar en við höfum bætt við nýju og spennandi meðlæti. Nemendur og starfsfólk fá þannig enn meira frelsi til að setja saman holla og bragðgóða máltíð úr meðlætisbarnum, hvort sem meðlætið er tekið með aðalrétti dagsins eða notað til að setja saman léttari máltíð í hádeginu.
Meðal nýjunga eru fjölbreyttir baunaréttir, bragðgóð pasta- og byggsalöt ásamt fleiri ferskum og litríkum blöndum. Upplýsingar um meðlætisbar dagsins má alltaf finna á heimasíðunni okkar skolamatur.is.
Við hvetjum ykkur til að deila með okkur ábendingum þegar reynsla er komin á nýjungarnar. Ykkar endurgjöf er okkur ómetanleg til að gera góða þjónustu enn betri.
Nýjungar á matseðlinum
Skólamatur leggur mikinn metnað í markvissa vöruþróun með það að leiðarljósi að tryggja börnunum góða næringu, fjölbreytni og jákvæða matarupplifun.
Á árinu bættust fjölmargir spennandi réttir á matseðilinn, svo sem kornflexfiskur, lambapottréttur, framandi kjúklingaréttir og toskana-bollur.
Við höfum einnig lagt mikla áherslu á meðlætið okkar. Við bjóðum nú upp á heimagerða kartöflumús úr ferskum kartöflum, sætkartöflumús, rófustöppu, bygg og fjölbreyttar nýjar sósur. Auk þess að bæta við nýjum réttum höfum við endurskoðað klassíska rétti eins og bolognese, chili con carne, mexíkóska hakkgrýtu og piparostasósu. Einnig hafa allar súpurnar okkar fengið yfirhalningu.
Þróunarstarfið heldur ótrautt áfram og nú þegar eru í vinnslu nýjar kjöt- og fiskisósur, súpur og fleiri fiskréttir.
Við hlökkum til að kynna nýju réttina fyrir okkar viðskiptavinum og höldum einbeitt áfram að tryggja börnunum holla og bragðgóða næringu á hverjum degi.


