Aukið úrval í meðlætisbar og nýtt fyrirkomulag vegan máltíða
Fyrir skólaárið 2026-2027 höfum við unnið að ýmsum umbótum á matarþjónustu Skólamatar með það að markmiði að auka valfrelsi, mæta fjölbreyttum þörfum nemenda og draga úr matarsóun.
Meðlætisbarinn verður efldur enn frekar með auknu úrvali ferskra og fjölbreyttra valkosta. Nemendur og starfsfólk geta nýtt úrvalið sem hollt meðlæti við aðalrétt dagsins eða sett saman staðgóða og næringarríka máltíð úr því sem í boði er.
Jafnframt verður vegan máltíð áfram í boði fyrir þau sem kjósa vegan mataræði. Foreldrar/forráðamenn vegan nemenda þurfa hér eftir að óska eftir sérfæði við skráningu í mataráskrift. Skráning í vegan mataræði fer fram með sama hætti og skráning í önnur sérfæði. Breytingin er liður í því að bæta nýtingu, draga úr matarsóun og tryggja sem besta þjónustu við þau sem velja vegan fæði.
Við hlökkum til að þjónustu ykkur í vetur og halda áfram að þróa matarþjónustuna í samvinnu við skólasamfélagið.


