16. október 2020

Skólamatur og Guðrún Sóley í samstarf um þróun nýrra veganrétta

Skólamatur og Guðrún Sóley í samstarf um þróun nýrra veganrétta

Skólamatur og Guðrún Sóley undirrituðu á dögunum samstarfssamning um framleiðslu á nýjum veganréttum sem munu birtast á matseðli Skólamatar innan skamms.

Skólamatur sem hefur um rúmlega tuttugu ára skeið sérhæft sig í framleiðslu og framreiðslu á máltíðum fyrir leik- og grunnskólanemendur býður á hverjum degi upp á tvo aðalrétti, þar af er annar ávallt vegan.
Öllum viðskiptavinum Skólamatar stendur til boða að fá sér veganrétt. Stöðug aukning hefur verið í neyslu á veganréttum á undanförnum árum og daglega eru borðaðir rúmlega 1000 skammtar af veganrétt. Mikil ánægja er á meðal nemenda og starfsfólks að hafa kost á því að fá sér veganrétt. Samstarfið við Guðrúnu Sóleyju er liður í því að bæta enn frekar þjónustu við viðskiptavini okkar með meiri fjölbreytni og nýjungum í veganréttum.


Guðrún Sóley hefur fyrir löngu sannað sig sem ein af fremstu vegan sælkerum landsins. Árið 2018 gaf hún út matreiðslubókin Grænkerakrásir sem hefur slegið í gegn. Í júní síðastliðnum hlaut bókin alþjóðlegu Gourmand-matreiðslubókaverðlaun í tveimur flokkum. Bókin hlaut fyrsta sæti í flokki vegan matreiðslubóka og þriðja sæti í flokki skandinavískra matreiðslubóka.


Við hjá Skólamat erum þakklát fyrir að fá hæfileikaríku Guðrúnu Sóleyju í samstarf við okkur og hlökkum til að kynna afakstur samstarfsins sem fyrst fyrir viðskiptavinum okkar.

Aftur í fréttalista