10. febrúar 2026
Um mikilvægi matvælaöryggis
Matvælaframleiðsla er viðkvæm atvinnugrein þar sem mistök geta haft bein áhrif á heilsu neytenda. Þar er nauðsynlegt að viðhafa fagleg vinnubrögð á öllum stigum ferlisins, frá innkaupum hráefna til framreiðslu. Skýrir verkferlar, þjálfun starfsfólks, gæðastjórnun og reglulegt eftirlit eru grundvallaratriði til að tryggja að matvælaöryggi sé ávallt í forgangi.
Við framleiðslu er sérstaklega mikilvægt að huga að réttu hitastigi við eldun, kælingu og geymslu, þar sem rangt hitastig getur stuðlað að vexti skaðlegra örvera. Flutningur matvæla skiptir sömuleiðis miklu máli; hann þarf að fara fram við viðeigandi aðstæður til að halda gæðum og öryggi matvælanna.
Einnig þarf að gæta varúðar við notkun aukefna og tryggja að þau séu notuð í samræmi við reglugerðir og með tilliti til ofnæmis og óþols. Rotvarnarefni eru notuð til að draga úr líkum á að hættulegar örverur (sýklar) eins og salmonella og listería geti fjölgað sér. Þau eru meðal annars notuð í osta, kjötálegg, majónes, salöt, súpur og sósur. Það er einkum gert til að tryggja matvælaöryggi og lengra geymsluþol en 2–4 daga.
Með því að leggja áherslu á þessa þætti er hægt að tryggja öruggar, næringarríkar og áreiðanlegar skólamáltíðir.
Skýrir gæðaferlar hjá Skólamat
Skólamatur vinnur skv. HACCP-eftirlitskerfinu sem ætlað er að draga úr eða koma í veg fyrir hættur sem geta skapast við framleiðslu og dreifingu matvæla og stuðla þannig að matvælaöryggi. HACCP er kerfisbundin aðferð til að fylgjast með matvælum, aðstæðum við framleiðslu, meðhöndlun, geymslu, umbúðum, dreifingu og notkunarleiðbeiningum.
Við fylgjum ströngum reglum um meðferð og geymslu matvæla og leggjum mikla áherslu á hitastjórnun og rekjanleika til að veita börnum bestu og öruggustu skólamáltíðina. Hjá Skólamat starfar fjöldi sérfræðinga á sviði matvælaframleiðslu og reksturs mötuneyta ásamt gæðastjóra. Allt starfsfólk fer í gegnum þjálfun og skrifar undir heilsufarsyfirlýsingu þegar það hefur störf.
Stöðug fræðsla og leiðbeiningar lykilatriði
Hjá Skólamat er maturinn undirbúinn í miðlægu eldhúsi okkar að Iðavöllum í Reykjanesbæ, en keyrður á allar okkar starfsstöðvar í upphafi dags þar sem starfsmenn okkar sjá um eldun ásamt framreiðslu.
Starfsfólk skólamötuneyta fær skriflegar leiðbeiningar sem gerðar eru af yfirmatreiðslumanni og staðfestar af gæðastjóra. Í þessum leiðbeiningum koma fram upplýsingar um hve lengi matur skal eldaður, á hvaða hitastigi, hvort og hvaða ofnæmisvalda hann inniheldur og við hvern skuli hafa samband ef upp koma spurningar eða ábendingar.
Reglulega eru haldin fjölbreytt námskeið fyrir starfsfólk og einu sinni á ári fer fram námskeið um matvælaöryggi sem haldið er af rannsóknarstofunni Sýni. Árlega fær starfsfólk Skólamatar einnig fræðslu um hreinlætisferla frá hreinlætisfyrirtækinu Tandur. Sýni veitir að auki ráðgjöf um verklag og aðstöðu, kemur reglulega í óundirbúnar úttektir í miðlægt eldhús og gerir hreinlætismælingar. Tandur kemur reglulega, bæði í miðlægt eldhús og í mötuneyti og gerir mælingar. Þá sinnir heilbrigðiseftirlit hvers sveitarfélags eftirliti í miðlægu eldhúsi og í eldhúsum skólanna.
Skólamatur er sífellt að leita leiða til þess að gera betur. Ef þú lumar á hugmynd um hvernig við getum bætt okkur enn frekar þá hvetjum við þig til þess að senda okkur póst á skolamatur@skolamatur.is