12. ágúst 2021
Skráning í mataráskrift er hafin
![Skráning í mataráskrift er hafin](/media/1/28.jpg?w=640)
Skráning í mataráskrift fyrir skólaárið 2021-2022 er hafin. Við skráningu er mikilvægt að fylla út réttar upplýsingar svo sem bekkjarheiti, kennitölur og greiðslufyrirkomulag.
Ef einhverjar spurningar vakna varðandi áskriftaskráningu, vinsamlegast hafið þá samband við skrifstofu í síma 420-2500 eða sendið tölvupóst á skolamatur@skolamatur.is