12. febrúar 2026
Saman lágmörkum við matarsóun
Hjá Skólamat leggjum við áherslu á að starfa í sátt við umhverfið og sérstök áhersla er lögð á að lágmarka matarsóun með markvissum aðgerðum. Unnið er eftir sérstöku verklagi sem tryggir hámarks nýtingu á öllum stigum þjónustunnar, allt frá innkaupum til framreiðslu í mötuneytum.
Hvað er gert til að sporna við sóun?
Fræðsla og vinnubrögð: Starfsfólk fær reglulega þjálfun í réttri meðhöndlun matvæla, allt frá bestu aðferðum við niðurskurð grænmetis eða framreiðslu sem dregur úr rýrnun.
Mælingar og eftirlit: Nýting á öllu hráefni er skráð daglega í sérstakt kerfi og gögn nýtast við þróun matseðla sem höfða til nemenda og gera okkur kleift að áætla nákvæmlega það magn sem þarf hverju sinni.
Sjálfsskömmtun: Í flestum skólum sem við þjónustum skammta nemendur sér sjálfir. Reynslan sýnir að þegar börn ráða skammtastærðinni sjálf minnkar matarsóun verulega.
Hringrásarnýting: Allur úrgangur er flokkaður og leitast er við að lágmarka kaup á einnota vörum. Allur nýtilegur matur sem fellur til við framleiðsluna eða verður afgangs er gefinn Fjölskylduhjálp Íslands.
Markmiðið er einfalt: Maturinn á að fara í magann en ekki í ruslið.
Skólamatur heldur ótrauður áfram á þessari vegferð og leitar stöðugt nýrra leiða til að gera enn betur fyrir umhverfið