14. september 2026

Petru papriku-vika hjá leikskólum Skólamatar

Petru papriku-vika hjá leikskólum Skólamatar

Dagana 21.–25. september verður sérstök Petru papriku-vika hjá leikskólum Skólamatar. Af því tilefni hefur Hafdís Helgadóttir, næringarfræðingur og höfundur bókanna um Petru papriku, sett saman fjölbreyttan og skemmtilegan matseðil fyrir leikskólana.

Matseðill vikunnar samanstendur af næringarríkum Petru papriku-réttum og samræmist, líkt og allur matur frá Skólamat, ráðleggingum Embættis landlæknis. Grunnskólanemendur njóta einnig góðs af þessum girnilega matseðli sem verður í boði í öllum grunn- og leikskólum sem Skólamatur þjónustar.

Markmið Petru papriku-vikunnar er að  gleðja börnin, gera skólamatinn enn skemmtilegri og vekja áhuga þeirra á næringu og fjölbreyttu mataræði. Í gegnum Petru papriku fá börnin tækifæri til að kynnast mat og næringu á einfaldan, jákvæðan og skemmtilegan hátt.

Allir leikskólar sem fá mat frá Skólamat fá jafnframt bók um Petru papriku að gjöf  og eru leikskólarnir hvattir til að lesa hana fyrir börnin í vikunni. Einnig verður boðið upp á skemmtileg verkefni tengd Petru papriku þar sem börnin geta fræðst um mat og næringu í gegnum leiki og þrautir.

Hafdís Helgadóttir er næringarfræðingur, rithöfundur og kennari.  Hún gaf út sína fyrstu barnabók,  Ævintýri Petru papriku, árið 2024. Hafdís hefur mikinn áhuga á næringarfræðslu barna og því hvernig hægt er að miðla upplýsingum um mat og næringu á aðgengilegan, jákvæðan og skemmtilegan hátt.

Á samfélagsmiðlum Skólamatar verður hægt að fylgjast með fjölbreyttu efni þar sem  Hafdís, Petra paprika og Skólamatur taka höndum saman og kynna vikuna, matseðilinn og ýmislegt annað skemmtilegt.

Við hlökkum til Petru papriku-vikunnar og vonum að hún verði  skemmtileg, fræðandi og bragðmikil upplifun fyrir börnin.

Aftur í fréttalista