11. júní 2026
Öryggi fyrir mikilvægasta fólkið
Öryggi fyrir mikilvægasta fólkið
Þann 7. júní, var alþjóðlegur dagur matvælaöryggis. Frumkvæði að deginum eiga Sameinuðu þjóðirnar, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) og Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) til áminningar um að örugg matvæli eru ekki sjálfsagður hlutur heldur afrakstur þekkingar, ábyrgðar, verklags og stöðugrar eftirfylgni.
Þema dagsins í ár er From burden to solutions – safe food everywhere, eða frá vanda að lausnum, örugg matvæli alls staðar. Þar er lögð áhersla á að matarsjúkdómar séu að stórum hluta fyrirbyggjanlegir og að vísindi, gögn og fagleg vinnubrögð séu lykillinn að trausti.
Öruggar skólamáltíðir
Hjá Skólamat er matvælaöryggi ekki eitthvað sem við leiðum hugann að einungis á þessum degi heldur stór hluti af okkar vinnu á hverjum einasta degi. Hvort sem er í móttöku hráefna, flutningum, skráningum, þrifum, eldun, pökkun eða framreiðslu skiptir matvælaöryggi öllu máli.
Þegar matur er eldaður fyrir börn er ábyrgðin sérstaklega mikil. Börn eiga ekki að þurfa að velta fyrir sér hvort maturinn sem þau fá í skólanum sé öruggur og foreldrar og starfsfólk skólanna eiga að geta treyst því.
Matvælaöryggi snýst ekki aðeins um verklag og eftirfylgni heldur snýst það líka um að byggja upp menningu þar sem allir sem koma að ferlinu skilja mikilvægi hlutverks síns. Gæðakerfi, verklagsreglur og skráningar eru nauðsynlegar en virka aðeins ef fólkið sem vinnur eftir þeim hefur þekkingu, þjálfun og skilning á því hvers vegna þær skipta máli.
Skýrt verklag tryggir öryggi
Hjá Skólamat starfar fjöldi sérfræðinga á sviði matvælaframleiðslu og reksturs mötuneyta ásamt gæðastjóra. Allt starfsfólk fer í gegnum þjálfun og skrifar undir heilsufarsyfirlýsingu þegar það hefur störf.
Maturinn er undirbúinn í miðlægu eldhúsi Skólamatar að Iðavöllum í Reykjanesbæ, en keyrður á allar okkar starfsstöðvar í upphafi dags þar sem starfsmenn okkar sjá um eldun ásamt framreiðslu.
Starfsfólk skólamötuneyta fær skriflegar leiðbeiningar sem gerðar eru af yfirmatreiðslumanni og staðfestar af gæðastjóra. Í þessum leiðbeiningum koma fram upplýsingar um hve lengi matur skal eldaður, á hvaða hitastigi, hvort og hvaða ofnæmisvalda hann inniheldur og við hvern skuli hafa samband ef upp koma spurningar eða ábendingar.
Skýrir verkferlar, þjálfun starfsfólks og reglulegt eftirlit eru grundvallaratriði til að tryggja að matvælaöryggi sé ávallt í forgangi.
Sameiginlegt verkefni okkar allra
Í matvælaframleiðslu er oft talað um fyrirbyggjandi aðgerðir. Það er einmitt kjarninn í góðu matvælaöryggi. Við viljum ekki bregðast við mögulegum vandamálum eftir á, heldur koma í veg fyrir þau. Þess vegna skipta reglulegt eftirlit, mælingar og skráning máli. Þess vegna skiptir máli að allir starfsmenn viti hvað þeir eiga að gera, hvernig þeir eiga að gera það og hvenær þurfi að bregðast við.
Matvæli verða örugg vegna þess að unnið er eftir faglegum kröfum, með réttum búnaði, réttri þekkingu og stöðugu eftirliti. Öryggi matarins byggir á kerfi, ekki tilviljun.
Alþjóðlegur dagur matvælaöryggis minnir okkur á að matvælaöryggi er sameiginlegt verkefni. Það er verkefni stjórnvalda, framleiðenda, birgja, starfsfólks, skóla og heimila. Allir hlekkir keðjunnar skipta máli. Ef einn hlekkur bregst getur það haft víðtæk áhrif.
Við hjá Skólamat tökum þessari ábyrgð alvarlega. Við vitum að maturinn okkar er hluti af skólagöngu barna og fyrir mörg börn er skólamáltíðin stór hluti af næringu dagsins. Hún á að vera örugg, næringarrík og framleidd af fagmennsku.
Á alþjóðlegum degi matvælaöryggis er því mikilvægt að minna á að öruggur matur er ekki aukaatriði. Hann er forsenda heilsu, vellíðunar og jafnræðis. Öll börn eiga rétt á því að fá mat sem þau geta treyst. Öll samfélög þurfa kerfi sem tryggja að matur sé framleiddur, fluttur og framreiddur með ábyrgum hætti.
Höfundur er gæðastjóri Skólamatar.