21. október 2026
Ítölsk vika hjá Skólamat
Dagana 26.–30. október verður ítölsk vika hjá Skólamat!
Ítölsk matargerð er þekkt fyrir einfaldleika, góð hráefni og bragðgóðar máltíðir sem fólk nýtur saman. Í ítölsku vikunni fá nemendur að kynnast réttum sem sækja innblástur í þessa matarhefð. Boðið verður upp á fjölbreytta ítalska rétti, bæði klassíska Skólamatarrétti og nýja spennandi rétti.
Með ítölsku vikunni viljum við brjóta upp hversdaginn, vekja forvitni nemenda á mat og nýjum bragðtegundum og gera hádegismatinn að enn skemmtilegri upplifun.
Matseðill ítölsku vikunnar samræmist, líkt og allur matur frá Skólamat, ráðleggingum Embættis landlæknis og er næringargildi hvers réttar reiknað út af matvælafræðingi okkar.
Við vonum að ítalska vikan verði skemmtileg, fræðandi og bragðmikil upplifun fyrir bæði nemendur og starfsfólk.
Buon appetito!