13. maí 2026
Holl næring fyrir ævintýri sumarsins
Sumarið er tími útiveru og ferðalaga en það getur einnig falið í sér langa daga og breytta rútínu. Þó að rútínan fari í frí þá gerir hungurtilfinningin það ekki, börn í vexti þurfa gott eldsneyti í leik og ævintýrum sumarsins svo gott er að huga að því að hafa eitthvað fljótlegt til að grípa í þegar svengdin bankar upp á.
Snarl á ferðinni
Þegar börnin eru mikið á ferðinni og úti að leika sér eykst orkuþörf þeirra, þá er gott að hafa næringarríkt snarl við höndina:
Grænmeti og ávextir: Sniðugt er að skera niður ávexti og grænmeti í box og taka með sem nesti í bílinn eða gönguferðir.
Skyr eða jógúrt: Einfalt, ljúffengt og gefur góða orku fyrir ævintýri dagsins.
Hnetur, fræ og þurrkaðir ávextir: Frábært nesti sem inniheldur mikla orku og er auðvelt að grípa með.
Vatn: Ekki má gleyma brúsa af ísköldu vatni, en vatnið er auðvitað besti svaladrykkurinn.
Matur og samvera
Sumarið er fullkomið tækifæri til að leyfa börnunum að taka þátt í eldamennskunni. Leyfðu þeim að skera niður ávextina, smyrja nestið eða velja grænmetið á grillið. Þegar börnin fá að taka þátt í eldamennskunni verða þau oft spenntari fyrir því að smakka nýjar og hollar fæðutegundir.
Slökkvum á skjánum – njótum stundarinnar
Hvort sem setið er við eldhúsborðið eða úti í náttúrunni þá er matartíminn góður tími til að spjalla saman um ævintýri dagsins. Leggjum símana til hliðar og njótum þess að borða saman.
Góðar matarvenjur og jákvæð tengsl við mat mótast snemma og eru veganesti sem börnin taka með sér út í lífið. Gerum sumarið bæði ljúffengt og næringarríkt!
Gleðilegt og næringarríkt sumar!