9. desember 2025
Hátíðarmatur Skólamatar
Árlegur hátíðarmatur Skólamatar verður í boði í flestum skólum þann 11. desember. Ákveðnir skólar hafa óskað eftir að bera hátíðarmatinn fram á öðrum dögum, upplýsingar um það má nálgast á heimasíðu okkar þar sem hægt er að skoða matseðil hvers skóla fyrir sig.
Á boðstólnum í ár er kalkúnn með salvíusmjöri, steiktum kartöflum, eplasalati og heitri sveppasósu og ísblóm í eftirrétt.
Einnig er boðið upp á vegan Wellington með heitri sveppasósu, steiktum kartöflum og eplasalati og vegan ís í eftirrétt.
Þau börn sem eru skráð í sérfæði vegna mjólkurofnæmis eða -óþols fá íspinna í stað ísblóms.
Í meðlætisbarnum má finna rauðkál, maísbaunir, perur, epli og banana.
Við vonum að allir nemendur og starfsfólk njóti hátíðarmatarins og eigi notalega stund saman.