10. júní 2026

Gleðilegt sumar

Gleðilegt sumar
Nú þegar skólaárið er senn á enda og sumarið farið að láta á sér kræla sendum við hjá Skólamat ykkur hlýjar sumarkveðjur og þökkum kærlega fyrir veturinn. 
 
Það er okkur bæði ánægja og heiður að fá að vera hluti af skóladegi barnanna ykkar með því að bjóða þeim upp á hollar, næringarríkar og bragðgóðar skólamáltíðir. Við hjá Skólamat leggjum áherslu á að bjóða börnum ykkar upp á það allra besta sem völ er á þegar kemur að gæðum, næringu og nýjungum í skólamáltíðum og vinnum því stöðugt að því að þróa matseðlana okkar og bæta þjónustuna í takt við ábendingar og þarfir skóla, nemenda og fjölskyldna.
 
Á liðnu skólaári hefur starfsemi okkar vaxið og dafnað. Þrátt fyrir vöxtinn leggjum við áfram áherslu á persónulega og vandaða þjónustu með velferð okkar viðskiptavina að leiðarljósi.
 
Við þökkum ykkur innilega fyrir traustið og samstarfið á liðnu skólaári og hlökkum til að halda áfram að elda fyrir börnin ykkar á nýju skólaári en þangað til óskum við ykkur og fjölskyldum ykkar gleðilegs, ljúfs og bragðgóðs sumars.
 
Sumarkveðjur,
Jón Axelsson,
forstjóri Skólamatar

Aftur í fréttalista