Um skólamat
Samfélagsleg ábyrð

Skólamatur tekur samfélagslegu ábyrgð sína alvarlega og leggur sitt að mörkum. Fyrirtækið leggur áherslu á að vinna í sátt við umhverfi sitt og leggur ríka áherslu á umhverfisvernd. Sem dæmi má nefna að matarsóun er höfð í lágmarki, allur lífrænn úrgangur er vigtaður og skráður og tölfræðin er nýtt til að lágmarka sóun og lífræunum úrgangi er fargað á viðeigandi hátt. Allur matur sem fellur til og ekki er hægt að nýta er gefinn til fjölskylduhjálpar íslands.

Matarsóun
Skólamat er mikið í mun að lifa í sátt við umhverfi sitt og náttúru og rík áhersla er lögð á það að lágmarka matarsóun.
Skólamatur flokkar allt sitt rusl sem fellur til og skilar aðgreindu til sorpmóttöku. Lögð er áhersla á í innkaupum að umbúðir séu úr endurvinnanlegu efni og einnota vörur eru keyptar í lágmarki.
Starfsfólk er vel upplýst og frætt um meðhöndlun matvæla og rétta skömmtun þar sem það á við. Starfsfólki er leiðbeint um hvernig skera eigi t.d. grænmeti og ávexti, hvernig bera eigi mat fram til að lágmarka sóun og hvernig best er að framreiða matinn með tilliti til matarsóunar.
Allir nýtilegir matarafgangar er komið í hendur Fjölskylduhjálpar Íslands sem kemur þeim áfram til fjölskyldna í neyð.

Góðgerðarmál
Skólamatur lætur gott af sér leiða og styrkir hin ýmsu góðgerðafélög ýmist með beinum styrkjum, matargjöfum eða öðrum aðferðum.
Skólamatur á gott farsælt samband við Fjölskylduhjálp Íslands, en öllum nýtilegum matarafgöngum er komið í þeirra hendur sem kemur þeim svo áfram til fjölskyldna í neyð.

Styrkir
Skólamatur styður þétt við bakið á íþróttafélögum í nærumhverfi sínu með ýmsu móti, til að mynda með matargjöfum og styrkjum.
Skólamatur styrkir ýmis íþrótta og æskulýðsstarf og er helsti markhópurinn börn og unglingar.