Þjónusta við nemendur í 10 ár
29.apríl 2010
Að gera öllum til hæfis
Það er krefjandi verkefni að gera öllum til hæfis. Það er sérstaklega krefjandi að gera öllum til hæfis tvisvar á dag fimm daga vikunnar í heil tíu ár, og það stappar nærri því að vera óyfirstíganlegt verkefni þegar kemur að börnum og mat. Þetta er þó sú áskorun sem eigendur og starfsfólk fyrirtækisins Skólamatar hafa tekist á við er þau hafa vaknað til vinnu sinnar sl. áratug, en fyrirtækið fagnar nú 10 ára afmæli sínu.
Það er þó mun meira en 10 ára reynsla að baki fyrirtækinu. Eigandi þess, Axel Jónsson veitingamaður, hefur 40 ára reynslu af því að metta svanga maga á öllum aldri og á henni er fyrirtækið byggt og starfsfólkið sækir í þann sjóð í daglegum störfum.
,,Ég hef lengi staðið í veitinga- og atvinnurekstri en það er jafnframt ljóst að svona fyrirtæki byggist ekki á einum manni,” segir Axel. ,,Það liggur mikil þróunarvinna að baki því að búa til góðar leik- og grunnskólamáltíðir og ég hef verið að vinna að því með mínu góða starfsfólki síðustu 10 ár. Við leitum okkur þekkingar hvar sem hana er að finna og vinnum með ýmsum sérfræðingum og fagaðilum hér á landi s.s. Iðntæknistofnun, Sambandi íslenskra sveitafélaga og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, auk þess að vera í samstarfi við sambærileg fyrirtæki í öðrum löndum og fara á sýningar erlendis,” segir hann.
Friður í sinni
Skólamatur matreiðir rúmlega 4.000 máltíðir á dag í 15 skólum í 6 sveitarfélögum. Það samsvarar um 700.000 máltíðum á ári, eða vel rúmlega tvöföldum fjölda íslensku þjóðinnar. Axel segir að rík áhersla sé lögð á að bjóða upp á hollan, góðan og heimilislegan mat fyrir grunnskólanemendur. ,,Við leggjum mikið upp úr því að bjóða upp á ferskt grænmeti og ávexti og höfum sett upp meðlætisbari þar sem nemendur geta valið einstakar tegundir. Eftir að við settum þá upp hefur neysla nemenda á grænmeti og ávöxtum þrefaldast,” segir hann.
Hjá Skólamat starfar næringarfræðingur sem fer sérstaklega yfir matseðla og samsetningu máltíða, reiknar næringargildi matarins og metur hollustu hans með hliðsjón af ráðleggingum Lýðheilsustöðvar.
,,Við höfum sagt að við seljum ,,frið í sinni”. Skólayfirvöld og foreldrar verða að geta treyst okkur fyrir því að nemendum standi til boða hollur matur sem þeir vilja borða,” segir Axel og heldur áfram: ,,Þetta tekst með því að vinna náið með skólastjórnendum og öðru starfsfólki skólanna, foreldrum og síðast en ekki síst með því að hlusta á nemendurna sjálfa. Það er að sjálfsögðu mikilvægt að ná að gera hollan og góðan mat spennandi í augum nemendanna svo að þeir njóti hans.”
Innrásar- en ekki útrásarfyrirtæki
Hjá Skólamat starfa rúmlega 40 manns. Menntun og þekking starfsmanna er fjölbreytt en um 70% þeirra eru konur og er meðalaldur þeirra 47 ár. Axel segir að Skólamatur sé alls ekkert útrásarfyrirtæki heldur þvert á móti. ,,Samfélagið hjá Skólamat byggist upp á gömlum íslenskum gildum og snýst um að búa til heimilislegan mat fyrir nemendur, en ekki að horfa út á við. Slagorð okkar er ,,hollt, gott og heimilislegt” og ég vil lýsa fyrirtækinu sem innrásarfyrirtæki. Hér er það ekki skyndigróði og skammsýni sem ráða heldur konur með sleifar, potta og pönnur. Hér er því nokkurs konar búsáhaldabylting á hverjum degi og þótt ég eigi fyrirtækið og reyni að miðla af minni reynslu þá ræður kvenþjóðin öllu enda eru þær í meirihluta,” segir hann og bætir við kíminn: ,,Það hefði aldrei orðið neitt hrun á Íslandi hefði stjórnunarmódel Skólamatar ráðið í fjármálalífinu.”
Axel hvetur alla þá sem hafa góðar hugmyndir eða ábendingar varðandi skólamatinn að hafa samband við sig eða starfsfólk Skólamatar. ,,Vinna okkar byggist upp á samræðu við samfélagið og við þurfum stöðugt að bæta okkur, breyta matseðlinum og aðlaga okkur að þörfum og væntingum viðskiptavina okkar, nemendanna,” segir hann að lokum.
Til baka