Í upphafi nýs skólaárs vil ég bjóða nemendur og kennara velkomin til starfa með þeirri von að sem flestir sjái sér hag í því að snæða hollan og góðan hádegismat hjá okkur.
Það er í mínum verkahring sem næringarráðgjefandi fyrirtækisins að fylgjast með að sá hádegismatur sem boðið er upp á standist næringar- og hollustukröfur sem settar hafa verið fram af Manneldisráði. Þær kröfur eru í stórum dráttum eftirfarandi:
* Skólamáltíðin veiti u.þ.b. 1/3 af meðalorkuþörf og próteinum á dag.
*Skólamáltíðin ásamt morgunnesti veiti um það bil þriðjung af daglegri meðalorkuþörf og því er hæfilegt að hádegismaturinn innihaldi almennt um 500-600 hitaeiningar fyrir yngsta hópinn en meira fyrir unglinga.
* Máltíð veiti aldrei minna en 400 hit. miðað við minnsta skammt.
* Skólamáltíðin ásamt morgunbita í nestistíma veiti að meðaltali 1/3 af ráðlögðum dagskömmtum (RDS) fyrir börn af A- og C-vítamíni, járni og kalki.
* Fitumagn kjöthakks sé á bilinu 8-12%.
* Í kjötvörum fari fita ekki yfir 15% af þyngd og hlutfall af hreinu kjöti sé 75%.
* Saltmagn kjötrétta fari ekki yfir 0,5 g fyrir hver 100 g fæðu.
Það er okkur hjá Skólamat mikið kappsmál að inna okkar vinnu sómasamlega af hendi og að sá matur sem boðið er upp á standist allar þær gæðakröfur sem gerðar eru. Við leitum eftir góðu samstarfi við alla hlutaðeigandi og allar ábendingar eru að sjálfsögðu vel þegnar, því alltaf má betur gera.
Ég vil minna á heimasíðu Skólamatar, www.skolamatur.is en þar er hægt skoða 8-vikna matseðla og verða sér úti um ýmsar næringarlegar upplýsingar.
Virðingarfyllst, Ólafur G. Sæmundsson, næringarfræðingur