Póstlisti


Netfang:

Skrá netfang á póstlista

Matseðill

Börn og tannskemmdir
Allir gera sér eflaust grein fyrir því að neysla á sykursætum afurðum ýta undir tannskemmdir. Þó ber að hafa í huga að þær afurðir sem eru hvað varhugaverðastar þegar tennur eiga í hlut eru þær sem innihalda kolvetni og festast í tönnum í lengri tíma. Dæmi um slíkan mat eru þurrkaðir ávextir eins og rúsínur eða sælgæti á borð við karamellur. Það sem veldur tannskemmdum eru bakteríur í munni sem vinna að gerjun kolvetna og framleiða þá sýrur sem leysa upp glerung tannanna. Sífellt nart í kolvetnaríkan mat getur því ýtt undir tannskemmdir. Vatnsdrykkja á milli mála getur hins vegar dregið úr sykurmagni í munni og þar með tannskemmdum. Einnig hefur verið sýnt fram á að gervisætuefnið xýlitól hefur tannverndandi áhrif en xýlitól er meðal annars að finna í sumum tegunda tyggigúmmís.
Þá skal geta þess að tannsérfræðingar hafa lýst áhyggjum sínum yfir miklu þambi súrra drykkja, eins og gosdrykkja og ávaxtasafa, en sýran hefur eyðandi áhrif á tannglerunginn. Rannsókn frá árinu 2005 leiddi meðal annars í ljós að glerungseyðing greindist hjá 30% 15 ára unglinga og eru piltar í meiri áhættu eða um 37% og stúlkur um 23%. Þetta er hærra hlutfall en áður hefur komið fram í rannsóknum á íslenskum unglingum og er að sjálfsögðu mikið áhyggjumál. Ef takast á að snúa þessari öfugþróun við verður umfram allt að koma til aukið eftirlit og markvissari notkun á flúor og tannvænum „verkfærum“ eins og tannburstum og tannþráðum. Þess má geta að reglubundin neysla mjólkurmatar eins og mjólkur og osta hefur reynst afar gagnleg í að draga úr sýrumyndun og í að styrkja tannglerunginn.

Ólafur G. Sæmundsson, næringarfræðingur