Hugrenning í upphafi skólaárs
Líkt og allir foreldrar er mér mjög umhugsað um að börnin mín temji sér mataræði sem fullnægir þörfum þeirra á öllum þeim mikilvægu efnum sem líkaminn þarf á að halda, svo sem orkuefnum,vatni, vítamínum og steinefnum. Auðveldasta leiðin til þess að það takist er að sjálfsögðu sú að þeim sé gert kleift að nærast reglubundið og að boðið sé upp á fjölbreytta fæðu úr öllum fæðuflokkum.
Það hefur meðal annars sýnt sig að líkur aukast á því að börn temji sér heilbrigðar neysluvenjur sé þeim reglubundið boðið upp á sameiginlega máltíð. Hins vegar er ljóst að börn eru líklegri til að verða fyrir barðinu á átröskun ef foreldrar leggja ofuráherslu á “hollustu” þar sem jafnvel er gengið svo langt að börnunum sé bannað að neyta “unninnar” fæðu eða sætinda. Allt er best í hófi!
Skólamatarkveðja,
Ólafur Gunnar Sæmundsson, næringarfræðingur